|
13:04 |
13. júl. 2010 |
Gagnaveita |
Ljósleiðara vel tekið í Hlíðahverfi
Íbúar í norðanverðu Hlíðahverfi hafa sýnt ljósleiðara Gagnaveitunnar mikinn áhuga. Þó nokkrir hafa þegar tengst og eru hæstánægðir með gæði þjónustunnar. Vinna við tengingar heldur áfram og munum við tilkynna jafnóðum og nýjar götur eru klárar. |
|
11:30 |
24. jún. 2010 |
Gagnaveita |
Aðalfundur Gagnaveitu Skagafjarðar.
Aðalfundur Gagnaveitu Skagafjarðar fór fram í sal Safnahússins að Faxatorgi á Sauðárkróki, miðvikudaginn 23.júní. Dagskrá var með hefðbundu sniði og allar afgreiðslur samþykktar samhljóða. Fundarstjóri var Sigfús Ingi Sigfússon, verkefnastjóri atvinnumála og fundargerð ritaði Arnar Halldórsson. Stjórn félagsins var endurkjörin, Einar Gíslason fyrir Skagafjarðarveitur, Gísli Árnason fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Snorri Styrkársson fyrir Kaupfélag Skagfirðinga. Endurskoðandi félagsins, Kristján Jónasson, var einnig endurkjörinn. Fundarmenn höfðu umboð fyrir um 93 % hlutafjár. |
|
11:25 |
11. jún. 2010 |
Gagnaveita |
Gjaldskrárbreyting fyrirtækjatenginga
Stjórn Gagnaveitu Skagafjarðar hefur ákveðið eftirfarandi breytingar á heildsöluverðskrá til fyrirtækja og taka þær gildi frá og með 1. maí 2010.
Gjald fyrir 10 Mbits tengingu lækkar um tæp 50%.
Gjald á öðrum tengingum hækkar um 10%. |
|
16:48 |
08. jún. 2010 |
Gagnaveita |
Sala hafin í norðanverðu Hlíðahverfi
Íbúar rúmlega 70 heimila í norðanverðu Hlíðahverfi hafa fengið bréf í pósti þar sem kynnt er þjónusta Gagnaveitu Skagafjarðar yfir ljósleiðara. Þjónustuveitendur munu á næstunni kynna efnisframboð sitt.
|
|
10:54 |
04. jún. 2010 |
Gagnaveita |
Ljósleiðaravæðing Akrahrepps gengur vonum framar
Blöndhlíðingar hafa tekið vel við sér og pantað sér ljósleiðaratengingu á heimili sín. Á annan tug heimila eru þegar tengd og nokkur sem bíða.
Ekki er að sjá annað en að almenn ánægja sé með þessa þjónustu enda er þetta algjör bylting í fjarskipta og sjónvarpsþjónustu á flestum bæjum. |
|
11:58 |
27. apr. 2010 |
Gagnaveita |
Bás á Atvinnu, mannlífs og menningarsýningu
Gagnaveita Skagafjarðar tók þátt í sýningunni á Króknum nú um helgina. Á básnum okkar mátti sjá uppsetningu búnaðar og framboð á þjónustu yfir ljósleiðarann.
|
|
15:14 |
19. apr. 2010 |
Gagnaveita |
Truflanir á sambandi hjá Vodafone
Vegna bilunar í dreifikerfi Vodafone á Akureyri eru viðskiptavinir okkar sem að skipta við Vodafone nú sambandslausir. Viðgerð stendur yfir. |
|
09:22 |
25. feb. 2010 |
Gagnaveita |
Vel mætt á kynningarfund í Héðinsminni
Blöndhlíðingar orðnir vel upplýstir um ljósleiðarann.
Hátt í 40 manns komu á kynningarfund Gagnaveitu Skagafjarðar og hreppsnefndar Akrahrepps í Héðinsminni. Oddviti hreppsnefndar, Agnar Gunnarsson, bauð fólk velkomið og kynnti dagskrá kvöldsins.
Verkefnastjóri Gagnaveitunnar tók þá við með glærusýningu á tjaldi, kynnti helstu þætti ljósleiðaratækninnar og fór yfir grundvallarhugtök eins og "bandbreidd" og "megabita". Þá lýsti hann uppbyggingu kerfisins í Akrahreppi og útskýrði hvaða búnað og innanhúslagnir þarf að setja upp til að geta nýtt sér þá þjónustu sem boðið er upp á yfir ljósleiðarann.
Síðan voru þjónustuaðilar taldir upp og gerð grein fyrir þeirra framboði og að lokum var skipt yfir á flatskjá og fengu fundargestir að flakka um þær 70 sjónvarpsrásir sem bjóðast. Einnig var hægt að upplifa hraðann á internetinu í tölvu en margir hafa fram til þessa einungis haft aðgang að ISDN tengingum.
Fólk var almennt áhugasamt og flestir skráðu sig á lista hjá oddvitanum að fá tæknimann heim til að skoða aðstæður og meta kostnað við uppsetningu búnaðar. |
|
10:49 |
18. feb. 2010 |
Gagnaveita |
Fyrsta ljósleiðaratengingin virkjuð í Akrahreppi
Kerfið brátt tilbúið til afhendingar
Nú er komið ljósleiðarasamband í Félagsheimilinu Héðinsminni í Akrahreppi. Þetta er fyrsta tengingin sem er virkjuð í þeirri sveit og að loknum nokkrum prófunum verður hægt að fara að veita þjónustu á heimilum.
Þriðjudaginn 23. feb. kl. 21:00 verður haldin kynningarfundur fyrir íbúa hreppsins í Héðinsminni . Þar verður farið yfir þá þjónustu sem býðst yfir ljósleiðarann og umfang innanhússlagna útskýrt. |
|
15:32 |
26. jan. 2010 |
Gagnaveita |
Skilti í Túnahverfi
Á fundi stjórnar Gagnaveitu Skagafjarðar fyrir áramót var ákveðið að sækja um leyfi fyrir skiltum í Túnahverfi. Skiltin eru komin upp og eiga að minna íbúa hverfisins á að þeir hafa aðgang að bestu gagnatengingum sem völ er á hér á landi.
Kostir þess að tengjast ljósleiðara eru fjölmargir. Helst er að nefna hraðvirkari internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu með tugum rása, myndaleigu og símaþjónustu. Með þessum möguleikum opnast nýjar víddir í fjarvinnslu, fjarnámi, rafrænni heilbrigðisþjónustu, rafrænni stjórnsýslu og þátttöku í gagnvirkum tölvuleikjum svo að fátt eitt sé nefnt. Þeir sem vilja virkja sína tengingu hafa einfaldlega samband við söludeild Vodafone í síma 1414 eða Fjölnet í síma 455-7900.
Þessa dagana er verið að klára vinnu við ljósleiðaravæðingu Akrahrepps. Viðtökuprófanir fara fram á næstu dögum og styttist óðum í að hægt sé að bjóða Blöndhlíðingum að tengjast. Einnig er unnið við ídrátt í Hlíðahverfi og vonumst við til þess að geta boðið upp á þjónustu þar bráðlega.
|
|
11:42 |
21. jan. 2010 |
Gagnaveita |
Myndræn skýring á hraðamun milli tenginga
Á heimasíðu FTTH Council (ráð fyrir ljósleiðara á heimili) í Evrópu má finna ansi sniðugt tól sem sýnir vel muninn á hraða tenginga. Hægt er að velja hvort verið er að sækja tónlist á MP3 formi eða t.d. DVD mynd.
Þetta má prófa hér: Fiberspeed tool
|
|
08:55 |
07. jan. 2010 |
Gagnaveita |
Gjaldskrárhækkun vegna hækkunar á VSK
Tengigjöld Gagnaveitu Skagafjarðar hækka nú um áramót vegna breytinga á virðisaukaskatti.
Tengigjald fyrir ljósleiðarasamband verður kr. 2975.-
Tengigjald fyrir örbylgjusamband í dreifbýli verður kr. 4535.- |
|
08:42 |
06. jan. 2010 |
Gagnaveita |
Rafbækur ryðja sér til rúms.
Alltaf koma fram fleiri góðar ástæður fyrir góðri nettengingu
Búist er við að fólk muni í æ meiri mæli sækja sér bækur á netinu og lesa í tölvunni. Skv. frétt á vef ríkisútvarpsins fyrlgjast bókaútgefendur vel með þessari þróun. Sjá frétt hér
|
|
08:31 |
10. des. 2009 |
Gagnaveita |
Rífandi gangur í Hlíðahverfi
Nú er það ídráttargengið, svo kemur tengigengið, svo ljósið
Íbúar í norður-Hlíðum eru margir hverjir búnir að fá heimsókn frá ljósleiðaragenginu og farnir að velta fyrir sér næstu skrefum.
Fyrsta skref er að draga ljósleiðarann í húsin, svo þegar að ákveðin hluti hverfisins er klár er hægt að fara að tengja í brunnum og dreifistöð.
Þá er hægt að fara að selja aðgang að ljósleiðaranum og verður það auglýst sérstaklega. |
|
09:17 |
26. nóv. 2009 |
Gagnaveita |
Framkvæmdir hafnar í Hlíðahverfi
Loksins fá þeir "ljósið" í Hlíðarnar |
|
17:31 |
11. nóv. 2009 |
Gagnaveita |
Mælingar í Hlíðahverfi
Í dag og næstu daga verða mælingamenn á vegum Gagnaveitunnar á ferðinni í Hlíðahverfi. Verið er að staðsetja ljósleiðaralagnirnar með GPS tæki fyrir lagnagrunn sveitarfélagsins. Í langflestum tilfellum þurfa þeir að fara um bakgarða hjá fólki, en eins og siðuðum mönnum sæmir þá banka þeir uppá fyrst og láta vita af sér.
Við vonum að fólk kippi sér ekki upp við þetta og biðjumst afsökunar ef einhver verður fyrir ónæði. |
|
15:56 |
27. okt. 2009 |
Gagnaveita |
Ídráttur í Akrahreppi
Ljósleiðari kominn að Flatatungu
Ídráttur á ljósleiðara í Akrahreppi gengur þokkalega þessa dagana. Stofninn frá Grund að Flatatungu er klár og flestar heimtaugar. Hægt verður að fara að vinna við tengingar næstu daga. Næst verður ráðist í að koma stofni frá Grund að Dýrfinnustöðum, en vinna við heimlagnir er langt komin á þeim legg.
Tæknin sem notuð er við að koma kaplinum lengstu kaflana er athyglisverð en talað er um að honum sé fleytt með vatni. Í gula kassanum á myndinni hér til hliðar er búnaður til að dæla vatni í rörið og ýta á eftir kaplinum. Á neðstu myndinni má sjá hvar kapallinn er kominn gegnum rörið og vatnið fossar út. Sá kafli var rúmir 1200m. Strákarnir þakka því fyrir hvern frostlausan dag hér í Skagafirði ! |
|
08:26 |
20. okt. 2009 |
Gagnaveita |
Frumkvöðull í ljósleiðaratækni hlýtur Nóbelsverðlaun
Dr. Charles Kao hlýtur nóbelsverðlaun í eðlisfræði
Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði skiptast í tvennt að þessu sinni. Annarsvegar til Dr. Charles Kao en hann er frumkvöðull í ljósleiðaratækni og rannsóknir hans leiddu til þess að fundin var leið til að senda ljós um glerleiðara yfir100 km í einu en ekki bara 20 metra eins og menn voru að bögglast við í upphafi.
Hinsvegar til Willard S. Boyle og George E. Smith því uppgötvanir þeirra leiddu af sér CCD skynjarann, rafrænt auga sem grípur mynd og breytir í stafrænar upplýsingar en það er grundvöllur þess að hægt er að taka stafrænar myndir og ljósrita litmyndir, svo að eitthvað sé nefnt.
|
|
10:32 |
19. okt. 2009 |
Gagnaveita |
Fjölnet bætir mælingakerfi
Hægt að fylgjast með erlendu niðurhali
Fjölnet býður viðskiptavinum sínum að fylgjast grannt með erlendu niðurhali. Á heimasíðu fyrirtækisins, www.fjolnet.is er að finna viðskiptavinavef og eiga viðskiptavinir Fjölnets að hafa aðgang inn á hann með kenni og lykilorði. Þar geta þeir séð erlent niðurhal á tölvum sínum skv. IP tölu tölvunnar og auðveldar þetta fólki að lenda ekki í bakreikningum vegna of mikillar notkunar. |
|
15:16 |
09. okt. 2009 |
Gagnaveita |
Truflanir í sjónvarpi Vodafone
Lagfæringum lokið
Undanfarnar vikur hafa þeir viðskiptavinir Gagnaveitunnar sem að eru áskrifendur að sjónvarpi yfir ljósleiðarann orðið varir við truflanir í útsendingunni. Nú eiga þær að vera fyrir bý, því tæknimenn Vodafone hafa komist fyrir vandann.
Vegna ákveðins misskilnings hjá Þjónustuveri Vodafone vill Gagnaveita Skagafjarðar taka fram að bilunin lá ekki í tengingum eða ljósleiðaraneti okkar, heldur var um ræða bilun í sendingunni hingað norður.
Fyrir hönd Vodafone biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið viðskiptavinum okkar. |