Spurt og svarað
Hér verða sett inn svör við fyrirspurnum sem Gagnaveitunni berast eða tilbúnar spurningar og svör sett inn.
1. Hvað þarf ég að borga í stofngjald til að geta tekið ljósleiðarann inn fyrir vegg?
Ekkert á meðan framkvæmdunum stendur í þínu hverfi en hann gæti numið hundruðum þúsunda króna ef þú tekur hann inn eftir að framkvæmdum lýkur í þínu hverfi.
2. Þarf ég að virkja tenginguna strax og hún er komin inn fyrir vegg?
Nei þú þarft ekki að gera það, aðalmálið er að koma ljósleiðaranum inn fyrir vegg, en til þess að þú getir notið þeirrar þjónustu sem verður á kerfinu, verður þú að virkja tenginguna.
3. Hvað verður tengigjaldið hátt á ljósleiðaranum?
Tengigjaldið verður 2.975.- krónur á mánuði. Innifalið í því er aðeins tengingin sjálf, en notendur snúa sér til þjónustuaðila með kaup á internetþjónustu og annarri þjónustu sem í boði verður.
4. Hvað ef ég ákveð að taka ljósleiðarann ekki inn fyrir dyr hjá mér?
Það er vissulega undir íbúum komið hvort þeir vilji ljósleiðarann inn fyrir sína veggi, en Gagnaveitan leggur á það gríðarlega áherslu að í þessu átaksverkefni taki allir leiðarann inn til sín, þó tengingin verði ekki virkjuð strax. Ljósleiðarinn verður framtíðarflutningsleið gagna, efnis og samskipta skv. mati sérfræðinga og það kemur sá dagur að fólk vilji taka inn tengingu þó það geri það kannski ekki strax. Þetta snýst ekki endilega um hvað hægt sé að gera í dag heldur í framtíðinni. Íbúar viðhalda líka verðgildi eigna sinna með því að taka ljósleiðarann inn.
5. Get ég sagt símalínunni minni upp og tekið loftnetið niður af húsinu?
Já, þegar fólk tengist ljósleiðarakerfinu er það að tengjast kerfi sem flytur símaþjónustu og sjónvarpsefni, auk hefðbundinnar internetþjónustu. Ákveði notandi með virka tengingu að kaupa sjónvarpsdreifingu og símaþjónustu frá þjónustuveitanda, getur hann sagt símalínunni upp og átt þar með þann kostnað upp í mánaðarleg tengigjöld við ljósleiðarakerfið. Sá kostnaður nemur um 1500 krónum í dag.
6. Hvað með dreifbýlisnetið?
Gagnaveitan afsalaði sér svæði því sem fyrirtækið tileinkaði sér í aðdraganda útboðs Fjarskiptasjóðs. Þrátt fyrir það er fyrirtækið að vinna í uppbyggingu á háhraðaneti í dreifbýli, en aðeins á sínum forsendum og þar sem fyrirtækið telur það hagkvæmt. Sjá nánar HÉR.
7. Af hverju er farið í gegn um baklóðir en ekki að framanverðu þar sem flest önnur inntök eru?
Ástæðan fyrir því er sú að með því að fara í baklóðir er hægt að spara umtalsverðan kostnað sem annars yrði meiri ef fara þyrfti í gegn um götur, gangstéttar og innkeyrslur. Hægt er að tengja tvö hús sitt hvoru megin við stofnlagnir í bakgörðum en aðeins eitt ef farið er að framan verðu. Sjá nánar á lagnakortum sem finna má hér á síðunni.
8. Hvernig er verkferlið í ljósleiðaravæðingunni?
Verkið hefst á jarðvinnu, þar sem rör eru lögð í jörðu, bæði stofnlagnir og heimtaugar. Því næst og í kjölfarið á jarðvinnunni er ljósleiðari dreginn í rörin og að lokum er ljósleiðarinn tengdur í inntaksbox eða sökkul. Þegar tengingin verður virkjuð, er sérstakt tengibox fest á sökkulinn og í það tengibox eru lagðar lagnir frá þeim tækjum sem ætlunin er að nota yfir ljósleiðarann s.s. síma, sjónvarp og internet.

Sökkullinn ca 20-15 cm Tengibox Tengibox komið á sökkulinn
9. Hvað með innanhúslagnir, eru þær fríar líka?
Nei, verkefni Gagnaveitunnar lýkur við tengingu á sökklinum við inntakið. Til að ná sem mestri hagkvæmni í verkefninu er ávallt valin stysta leið inn í hús og venjulega farið í gegn um baklóðir svo hægt sé að tengja tvö hús til beggja átta úr stofnlögn. Í mörgum tilfellum er inntakið í bílskúrum íbúa og þá getur reynst heppilegt að tengja sökkulinn annarsstaðar en akkúrat við inntakið m.a. vegna betra aðgengis að langnaleiðum inn í íbúðarhús. Sé sú leið valin, er lagnaleiðin á milli inntaks og sökkuls á kostnað íbúa. Jafnframt eru allar lagnir í tengibox, eftir að tengingin er virkjuð, á kostnað íbúa.
10. Hef ég val um hvar ég læt setja inntaksboxið upp?
Já, en ekki strax. Í framkvæmdum Gagnaveitunnar er inntaksboxið sett upp við inntakið og þar með lýkur verkefninu af hálfu fyrirtækisins. Íbúar geta í framhaldinu og við skipulagningu innanhúslagna hjá sér, fært boxið á heppilegri stað en gera það þá á sinn eigin kostnað.
11. Hvernig fara samskiptin við íbúa fram?
Fyrst eru boðaðir kynningarfundir með íbúum þeirra svæða sem framkvæmdir verða á. Þar er farið yfir verkefnið, öll stig þess kynnt og fyrirspurnum svarað. Á þessum fundum eru fulltrúar Gagnaveitunnar og verktaka hennar. Með fundarboði er yfirlýsing send með sem íbúar þurfa að undirrita til að veita Gagnaveitunni leyfi til að fara í gegn um lóðir þeirra. Þessari yfirlýsingu á að skila í afgreiðslu ráðhússins.
Þegar líður að framkvæmdum í viðkomandi götum, setur verkefnastjóri sig í samband við íbúa og tekur þar á móti athugasemdum sem kunna að vera við lagnaleiðir og fleira.
Verktakinn hefur svo samband að lokum þegar kemur að framkvæmdinni sjálfri og þá er hægt að fara endanlega yfir málin.
|