Hvað er ljósleiðari?
Allir eru sammála um það að ljósleiðari er framtíðardreifileið margmiðlunarefnis og samskipta. Hann flytur gögn með margfalt meiri hraða en þær nettengingar sem í boði eru í dag. Ljósleiðarinn flytur gögn á sama hraða í báðar áttir, en hefðbundnar ADSL-tengingar flytja gögn aðeins á uppgefnum hraða í áttina til notanda, en með mun minni hraða frá honum.
Á Vísindavef Háskóla Íslands er m.a. að finna þessa skilgreiningu á ljósleiðara:
"Þegar talað er um ljósleiðara er oftast átt við granna þræði úr gleri eða plasti sem eru búnir þeim eiginleikum að geta leitt ljós frá einum stað til annars. Tilkoma ljósleiðara hefur valdið byltingu í samskiptatækni, en ljósleiðarar eru einnig notaðir í öðrum tilgangi, til dæmis í lækningatækjum."
Nánar má lesa um ljósleiðarann á Vísindavefnum með því að smella hér.
Bandbreidd ljósleiðarans gerir það að verkum að íbúar geta t.d. tekið á móti tugum sjónvarpsstöðva með tímanum, leigt sér bíómyndir heima í stofu (Video on demand) og búið sig undir sjónvarp framtíðarinnar, sem að stórum hluta kemur til með að byggjast á því að þú getir kallað fram það sjónvarpsefni sem þig langar til að horfa á, hvenær sem er (Program on demand).
Þessa mynd er einnig að finna í kynningabæklingnum sem dreift var á hvert heimili í Skagafirði. Þarna er leið ljósleiðarans sýnd inn á heimili. Fyrst í sérstakan sökkul eða inntaksbox og síðan í tengibox þegar tengingin hefur verið virkjuð. Úr tengiboxinu getur fólk síðan tengt í tölvur, síma og sjónvörp innanhúss hjá sér.
|