Gagnaveita Skagafjarðar ehf. | Borgarteig 15 | 550 Sauðárkrókur | Verkefnastjóri: Arnar Halldórsson gagnaveita@gvs.is Sími 455 6140/860 5171 | Tæknimál: Tengill ehf. Sími 455 7900 |
Fréttir
 
Get ég tengst?
Staðsetning
Húsnúmer.
Póstnúmer

 

Smella hér fyrir

Hraðaprófun

 

------------

Skagafjarðarveitur

Skagafjörður

KS

Uppsetning á skiltum
Uppsetning á skiltum
Bjarki tekur út verkið
Bjarki tekur út verkið
Skilti við Laugatún
Skilti við Laugatún
Gagnaveita | 26. janúar 2010 - kl. 15:32
Skilti í Túnahverfi

Á fundi stjórnar Gagnaveitu Skagafjarðar fyrir áramót var ákveðið að sækja um leyfi fyrir skiltum í Túnahverfi.  Skiltin eru komin upp og eiga að minna íbúa hverfisins á að þeir hafa aðgang að bestu gagnatengingum sem völ er á hér á landi.

Kostir þess að tengjast ljósleiðara eru fjölmargir.  Helst er að nefna hraðvirkari internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu með tugum rása, myndaleigu og símaþjónustu.  Með þessum möguleikum opnast nýjar víddir í fjarvinnslu, fjarnámi, rafrænni heilbrigðisþjónustu, rafrænni stjórnsýslu og þátttöku í gagnvirkum tölvuleikjum svo að fátt eitt sé nefnt.  Þeir sem vilja virkja sína tengingu hafa einfaldlega samband við söludeild Vodafone í síma 1414 eða Fjölnet í síma 455-7900.

Þessa dagana er verið að klára vinnu við ljósleiðaravæðingu Akrahrepps.  Viðtökuprófanir fara fram á næstu dögum og styttist óðum í að hægt sé að bjóða Blöndhlíðingum að tengjast.  Einnig er unnið við ídrátt í Hlíðahverfi og vonumst við til þess að geta boðið upp á þjónustu þar bráðlega.

 


Arnarh
Til baka
 
   
© NÝPRENT ehf. - Síðan er keyrð á SMALI xL 2