Gagnaveita | 25. febrúar 2010 - kl. 09:22 Vel mætt á kynningarfund í Héðinsminni Blöndhlíðingar orðnir vel upplýstir um ljósleiðarann.
Hátt í 40 manns komu á kynningarfund Gagnaveitu Skagafjarðar og hreppsnefndar Akrahrepps í Héðinsminni. Oddviti hreppsnefndar, Agnar Gunnarsson, bauð fólk velkomið og kynnti dagskrá kvöldsins.
Verkefnastjóri Gagnaveitunnar tók þá við með glærusýningu á tjaldi, kynnti helstu þætti ljósleiðaratækninnar og fór yfir grundvallarhugtök eins og "bandbreidd" og "megabita". Þá lýsti hann uppbyggingu kerfisins í Akrahreppi og útskýrði hvaða búnað og innanhúslagnir þarf að setja upp til að geta nýtt sér þá þjónustu sem boðið er upp á yfir ljósleiðarann.
Síðan voru þjónustuaðilar taldir upp og gerð grein fyrir þeirra framboði og að lokum var skipt yfir á flatskjá og fengu fundargestir að flakka um þær 70 sjónvarpsrásir sem bjóðast. Einnig var hægt að upplifa hraðann á internetinu í tölvu en margir hafa fram til þessa einungis haft aðgang að ISDN tengingum.
Fólk var almennt áhugasamt og flestir skráðu sig á lista hjá oddvitanum að fá tæknimann heim til að skoða aðstæður og meta kostnað við uppsetningu búnaðar. Arnarh |