
 |
| Skemda lögnin komin upp úr Þveránni |
 |
| Undirbúningur undir plæingu lagnarinnar |
 |
| Plæing hafin á nýrri lögn |
 |
| Tengingavinna í gangi | skv.is | 09. október 2009 - kl. 08:22 Hitaveitulögn í Akrahreppi skemmd.
Verið var að færa til möl í árfarvegi Þverárinnar í Akrahreppi þegar óhappið átti sér stað. Jarðýtustjórinn virðist ekki hafa áttað sig á hve nálagt lögninni hann var kominn þar til að hann fór í hana og flysjaði af henni einangrunina.
Stofnögnin, sem er 63 mm pex-lögn í 140 mm einangrun, fór sem betur fer ekki í sundur en flaut upp á milli bakka. Starfsmenn Skagafjarðarveitna og Steypustöðvar Skagafjarðar gerðu við skemmdirnar og varð að skipta um 50 - 70 metra bút í lögninni og plægja undir árfarveginn aftur.
Kostnaður vegna tjónsins hleypur á hundruðum þúsunda. pall |