
 |
| Heitavatnið hætt að renna úr holunni en kemur að hluta upp með fóðurrörinu. |
 |
| Borinn "Benedikt" á holunni. |
 |
| Skrúfað frá holunni eftir viðgerð. |
 |
| Áhofn borsins "Benedikts" í verklok eftir velheppnaða viðgerð. | skv.is | 09. október 2009 - kl. 09:30 Hitaveituholan á Sólgörðum bilaði.
Fyrirséð var að kalt mundi verða í sundlauginni á Sólgörðum og í þeim húsum sem tengd eru veitunni við þessar aðstæður og þetta ástand ekki á vetur setjandi.
Eftir skoðun og vangaveltur starfsmanna ÍSOR var ákveðið að leita til Ræktunarsambands Flóa- og Skeiða um að þeir gerðu við holuna.
Ræktunarsambandsmenn komu svo núna í vikunni við í Fljótunum á leið sinni norður í Þingeyjarsýslu með borinn „Benedikt“ og drógu gömlu 4" fóðringuna upp og boruðu nýja 7" fóðringu niður í holuna og steyptu fasta.
Þetta tókst vel og telja menn að holan sem boruð var árið 1974 muni duga mörg ár enn, en eftir lagfæringu gaf hún um 4 l/sek af 67 °C heitu vatni sem dugar vel fyrir þau not sem þarna eru. Þrýstingur í holunni lokaðri reyndist um 1.0 bar.
pall |