Skagafjarðarveitur ehf. | Borgarteig 15 | 550 Sauðárkrókur | Sími 455 6200 | Fax 455 6201 | Netfang skv@skv.is
Gjaldskrár
 
Gjaldskrá hitaveitu
Gjaldskrá vatnsveitu
Gengi
Vísitölur

Syrpa

Gagnaveitan

stillumhitann.is

Kort af hitaveitum í Skagafirði

Kortasjá Skagafjarðar

 

Prenta síðu

GJALDSKRÁ

Skagafjarðarveitna ehf.

Hitaveita

 

I. KAFLI

1. gr.

Skagafjarðarveitur ehf. í gjaldskrá þessari hér eftir nefndar SKV selja afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi Sveitarfélagsins Skagafjarðar og hafa umráðarétt yfir þeim eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð staðfestri af iðnaðarráðherra fyrir SKV.

 

2. gr.

SKV láta hverju húsi, sem tengt er við vatnsæðar veitnanna, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. SKV lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. SKV ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

 

3. gr.

Einungis starfsmenn veitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. SKV breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulítri. Selt vatnsmagn standi ávalt á heilum eða hálfum mínútulítra.

 

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til SKV. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal SKV greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða SKV, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

 

II. KAFLI

4. gr.

SKV rekur nú fimm aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi efnainnihald og hita. Þessi svæði eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð, á Steinsstöðum, í Hjaltadal og á Hofsósi. Gjöld fyrir eininguna af heitu vatni (m3 eða l/mín) verða því mishá eftir svæðum. Fast gjald hjá þeim notendum, sem kaupa heitt vatn eftir hemli, skal vera  krónur 660 pr. mán.

 

Gjöld fyrir afnot heita vatnsins eru sem hér segir:

Sauðárkróksveita:
Vatnsgjald kr. 1.688 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Varmahlíðarveita:
Vatnsgjald kr. 2.559 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Steinsstaðaveita:
Vatnsgjald kr. 1.276 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hjaltadalsveita:
Vatnsgjald kr. 1.276 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hofsósveita:

Vatnsgjald kr. 1.872 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.


5. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt 4. gr. og 8. gr. verða krafin hvern mánuð og skulu þau greiðast til skrifstofu Skagafjarðarveitna ehf, í bönkum eða pósthúsum. Gjalddagi er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 10 daga frá gjalddaga.


III. KAFLI

6. gr.

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

Rúmmál húss (utanmál) Heimæðargjald  
≤ 400 - 2.000 m3  =    151.797   f.   400  m3  =  121,60 kr/m3 þar yfir
2.000 - 6.000 m3  =    346.181   f. 2.000 m3 =  113,60 kr/m3 þar yfir
6.000 - 10.000 m3   =  801.299   f. 6.000 m3 =  106,30 kr/m3 þar yfir
Meira en 10.000 m3  = 1.226.424 f. 10.000 m3 =   76,00 kr/m3 þar yfir

 

Gjaldskrá þessi gildir í skipulögðum hverfum innan lögsagnarumdæmis Skagafjarðar.

 

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í dreifbýli:

Rúmmál húss (utanmál) Heimæðargjald  
≤ 400 m3  = 455.421  f. 400  m3  =   365 kr/m3 þar yfir

 

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða kr. 2.534 fyrir hvern lengdarmetra heimæðar frá stofnæð umfram 100 metra.

 

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

 

7. gr.

Gjöld samkvæmt 6. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Er stjórn SKV heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða, að fenginni staðfestingu iðnaðarráðuneytisins hverju sinni.


IV. KAFLI

8. gr.

Samkvæmt ákvæðum í 2. gr. er heimilt að selja heitt vatn til einstakra notenda um rúmmetramæli. SKV setur upp slíka mæla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

 Hjá notendum er kaupa vatn samkvæmt rúmmetramæli er heimilt að innheimta mælaleigu.

 

Gjald fyrir hvern rúmmetra vatns skal vera:

Sauðárkróksveita:  kr.  76,90

Varmahlíðarveita:  kr. 116,70

Steinsstaðaveita:     kr.  58,10

Hjaltadalsveita:       kr.  58,10 

Hofsósveita:            kr.  85,40 

 

Mælaleiga fyrir hvern mánuð skal vera sem hér segir:

Fyrir mæla ½” - Ύ”         kr.    660  pr. mán.
Fyrir mæla 1” - 2½”        kr. 1.570  pr. mán.
Fyrir mæla 3” og stærri   kr. 3.140 pr. mán.

 


9. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 31. gr. reglugerðar fyrir SKV og 79. gr. orkulaga 58/1967 með síðari breytingum.

 

10. gr.

SKV hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar fyrir SKV.

 

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er. Gjaldið skal vera það sama og mánaðarleiga á 3” mæli samkvæmt. 8. gr. gjaldskrár þessarar í hvert skipti og gjald fyrir mæla álestur (auka álestur) skal vera það sama og mánaðarleiga á 1” – 2½” mæli samkvæmt 8. gr. þessarar gjaldskrár.

 

Eftirlitsmanni SKV skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun heita vatnsins.

Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur um virðisaukaskatt á hverjum tíma.

 

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Skagafjarðarveitna ehf. staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. nóvember 2009 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnfram er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 558/2009.

 

Iðnaðarráðuneytinu, 12. október 2009.

                                                                                                             

 

F.h.r.

 

Kristján Skarphéðinsson / Guðjón Axel Guðjónsson


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

 

 

Til baka
 
   
Hönnun: hinir sömu sf.