Breyting á útsendingu hitaveitureikninga

Skagafjarðarveitur hafa ákveðið að hætta senda út hitaveitureikningana á pappírsformi og einnig rafrænni birtingu í heimabanka.  Í stað þess munu Skagafjarðarveitur birta alla hitaveitureikninga á „Mínum síðum“ sem eru aðgengilegar á heimasíðu Skagafjarðarveitna „skv.is“ og í íbúagátt Svf. Skagafjarðar á heimasíðunni „skagafjordur.is“  ásamt því að krafa stofnast í heimabanka.

Þegar er komið inn á skv.is  er hnappur sem heitir MÍNAR SÍÐUR ORKA og í íbúagáttinni er hnappurinn MÍNAR SÍÐUR ORKA  undir flipanum„GJÖLD“.  Þegar smellt er á þessa hnappa kemst viðskiptavinurinn á Mínar síður þar sem reikningarnir eru vistaðir.

MÍNAR SÍÐUR ORKA eru nú þegar virkar og þar hægt að sjá hitaveitureikninga, hreyfingaryfirlit, viðskiptastöðu og notkun og þar er einnig hægt að skrá álestur. 

Þeir viðskiptavinir sem eru 70 ára og eldri og hafa fengið reikninga senda til sín í pósti fá þá áfram senda heim til sín.

 

 Sjáðu yfirlit yfir notkun á þínu heimili

Inn á MÍNUM SÍÐUM ORKA er auðvelt að fylgjast með notkun heimilisins með því að skrá álestur og mynda þannig álestrasögu.  Bæði er hægt að senda inn eftirlitsálestur sem hefur ekki áhrif á áætlun, eða  uppgjörsálestur og greiða þá fyrir raunnotkun t.d. mánaðarlega eða eftir ákveðnum tímabilum.

Það er mikið öryggi í því að fylgjast vel með notkuninni, til að koma í veg fyrir umfram eyðslu með

tilheyrandi kostnaði.

Náttúran nýtur vafans

 

Með þessum breytingum eru Skagafjarðarveitur að nýta sér tækni nútímans til að spara pappír, sendingar og birtingarkostnað, og auka þjónustu við viðskiptavini sína sem kaupa heitt vatn eftir mæli og munu nú geta fylgst betur með notkun sinni.

 

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Skagafjarðarveitna í  síma 455-6200, tölvupóstur skv@skv.is eða á skrifstofunni að Borgarteigi 15-17 á Sauðárkróki  milli 9:00 og 16:00 (lokað í hádeginu)

 

Skagafjarðarveitur


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is