Formleg verklok hitaveitu í Fljótum

Síðasti verkfundur vegna hitaveitu í Fljótum fór fram í vikunni og því má segja að verkinu sé nú lokið með formlegum hætti. Verkinu var skipt á tvö ár, 2015 og 2016, og lagði verktakinn, Steypustöð Skagafjarðar, lokahönd á síðustu heimæðar í Fljótunum í október sl. Alls voru lagðir um 46km af lögnum sem skiptast nokkurn veginn til helminga í stál og plast lagnir. Boraðar voru þrjár borholur vegna verksins og eru tvær þeirra nýttar í dag. Síðasta holan sem boruð var, LH-04, lukkaðist með eindæmum vel. Borað var niður á um 170m dýpi og sýna afkastamælingar að holan geti gefið ríflega 35 l/s af 110°C heitu vatni. Í dag er því aðeins verið að nota brot af afkastagetu holunnar en rennslinu úr holunni er stjórnað þannig að aðeins er notað það magn sem nýtist veitunni hverju sinni. Byggðar voru þrjár nýjar dælustöðvar vegna verksins. Stærsta dælustöðin er við Langhús í Fljótum, rétt við áðurnefndar borholur, önnur dælustöð er við Molastaði og sú þriðja við Hvamm, rétt norðan við Stífluhóla. 

Í allt er búið að tengja 29 notendur hitaveitunni en þónokkrar tengingar bíða næsta árs.

Rýkur vel úr nýrri holu, LH-04

 


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is