Hólavegur, Hólmagrund og Fornós

Kominn er upp leki í kalda vatninu sunnarlega á Hólavegi. Til að viðgerð geti farið fram þarf að loka fyrir rennsli á Hólavegi  sunnan Öldustígs, Hólmagrund og Fornósi. 

Búast má við lokun upp úr klukkan 10 og að hún muni standa eitthvað fram eftir degi. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. 


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is