Áríðandi tilkynning til íbúa á Hofsósi

Staðfest hefur verið að sýni sem Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra tók úr neysluvatnstanki Hofsósinga innihélt talsvert magn E coli gerla eða 140/100ml. Því er íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn fyrst um sinn. 

Unnið er að úrbótum í samráði við Heilbrigðiseftirlitið og verða íbúar látnir vita þegar ástandið lagast. 

Mengunin er rakin til bilunar á geislatæki og er vonast til að viðgerð á því ljúki sem fyrst. 

Skagafjarðarveitur harma þetta ástand og biðjast velvirðingar á óþægindunum. 


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is