Lokað fyrir kalda vatnið.

Svæði sem lokun nær til.
Svæði sem lokun nær til.

Í dag, miðvikudaginn 26. október, verður lokað fyrir kalda vatnið á Sauðárkróki sunnan og austan við Hegrabraut vegna vinnu við stofnlögn. Lokunin afmarkast af Hegrabraut, Skagfirðingabraut, Borgargerði og Strandvegi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þá nær lokunin einnig til Árskóla ásamt heimavist og Verknámshúss FNV. 
Lokað verður fyrir rennslið seinni partinn í dag og fram á nótt. Truflanir gætu orðið á vatnsrennsli á öðrum svæðum bæjarins samhliða þessari lokun. 
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is