Truflanir í hitaveitu á Sauðárkróki

Vegna kuldans sem nú ríkir virðist sem þrýstingur hafi fallið í hitaveitu í bænum, fyrst í efti byggðum en síðar í öllum bænum. Búið er að loka sundlauginni og biðja stórnotendur að draga úr notkun. 

Skagafjarðarveitur biðja viðskiptavini sína að draga úr heitavatnsnotkun eftir því sem kostur er, minnka innspýtingar í plön og rennsli í heita potta. 

Skagafjarðarveitur biðjast jafnframt velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda, en vonast er til að ástandið lagist þegar líður á daginn. 


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is