Virkjun borholu SK-32 í Hrolleifsdal

Starfsmenn Skagafjarðarveitna í Hrolleifsdal
Starfsmenn Skagafjarðarveitna í Hrolleifsdal

Síðsumars hefur verið unnið hörðum höndum að því að virkja borholu SK-32 í Hrolleifsdal. Holan er staðsett um 35 metra norðan við núverandi borholu en sú hola þjónar Hofsósi og sveitinni frá Miðhóli í Hólahólum að Gröf á Höfðaströnd. Nýja borholan var boruð árið 2012 og er um 1.100 metra djúp og með vinnslufóðringu niður á 300m dýpi. Framkvæmdin felst í því að koma upp dæluhúsi sem hýsir mótor borholudælunnar og annan stýribúnað. Þann 22. og 23. september var dælunni komið fyrir í holunni. Dælan er á 200m dýpi og voru í allt settar saman 65 einingar af dæluröri og dæluöxli en hver eining eru rúmir 3 metrar á lengd. Til að hífa einingarnar var fenginn öflugur krani enda er heildarþungi eininganna um 10 tonn þegar búið er að tengja allar einingar saman. Verkið gekk mjög vel og tók það einungis 2 daga að koma dælunni á 200m dýpi í holunni.

Síðan að dælunni var komið fyrir hefur verið unnið að frágangi á lögnum og stýribúnaði í dælustöðinni. Dælan verður síðan gangsett í næstu viku og prufudælt úr holunni og stefnt að því að borholan verði tengd inn á kerfið fyrir lok árs.

Virkjun holunnar mun auka afhendingaröryggi á heitu vatni til notenda og er nauðsynleg viðbót þegar horft er til stækkunar veitusvæðisins.

Virkjun SK-32 í Hrolleifsdal


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is