09.09.2025
Minnum á vinnu við hitaveitu þriðjudaginn 9. September.
Heitavatnslaust verður á svæðinu frá Grófargili að Birkihlíð, Keflavík í Hegranesi og að Hofsstaðaseli frá kl. 8:00 þriðjudaginn 9.september og fram eftir degi, meðan unnið er við endubætur á dælustöðinni við Grófargil. Svæðið sem lokað verður fyrir er innan rammans á loftmyndinni. Viljum við biðla til notenda að hafa lokað fyrir alla krana á töppunarstöðum á meðan vinna stendur yfir. Þegar vatn kemur aftur á má búast við að loft geti myndast og þá gæti þurft að lofttæma ofna á miðstöðvarkerfum.
Beðist er velvirðingar á þessu þjónustustoppi og óþægindum sem þetta kann að valda notendum.
Skagafjarðarveitur
