18.11.2025
Skagafjarðarveitur luku í vor við að skipta út hemlum og mælavæða Sauðárkrók. Þar með eru allir þéttbýliskjarnar héraðsins mælavæddir.
Næst verður hafist handa við að setja upp mæla í dreifbýlinu og verður byrjað á notendum milli Sauðárkróks og Varmahlíðar, auk þess sem skipt verður út hemlum sem bila. Síðan má búast við verkinu verði haldið áfram út að austan og fram í Lýdó í beinu framhaldi.
Vinna við mælavæðinguna hefst nú á næstu dögum og eru húseigendur hvattir til að huga að húskerfum þar sem það þarf. Best er að leita til pípulagningamanna ef gera þarf breytingar.

