18.01.2024
		Skagafjarðarveitur minna viðskiptavini sína á öllum svæðum að fara sparlega með heita vatnið í kuldanum sem nú ríkir. 
Sérstaklega er bent á að athuga stýringar á snjóbræðslum í plönum, algengt er að stýrilokar standi á sér og hleypi vatni óhindrað í gegn.
Látið ekki renna í heita potta og hafið glugga lokaða nema rétt á meðan loftað er út.
					
										
                                                
