25.02.2026
Í gær bilaði hæðarskynjari í vatnstanki fyrir Varmahlíð, sem varð til þess að tankurinn tæmdist.
Vegna lágrar vatnsstöðu í vatnsbólum gengur hægt að fylla tankinn og eru íbúar því beðnir að fara sparlega með kalda vatnið næstu daga.
Sundlaugin verður lokuð til morguns að minnsta kosti.

