Flýtilyklar
Fréttir
Trufnanir í syðri bænum
27.11.2025
Búast má við truflunum á rennsi bæði í hitaveitu og vatnsveitu í syðri hluta Sauðárkróks eftir hádegi í dag fimmtudag.
Verið er að gera við bilun og svæðið sem um ræðir er Grundarstígur og aðliggjandi götur, Fornós, Hólmagrund, Smáragrund og syðsti hluti Hólavegar.
Lesa meira
Til notenda hitaveitu í dreifbýli í Skagafirði.
18.11.2025
Skagafjarðarveitur luku í vor við að skipta út hemlum og mælavæða Sauðárkrók. Þar með eru allir þéttbýliskjarnar héraðsins mælavæddir.
Næst verður hafist handa við að setja upp mæla í dreifbýlinu og verður byrjað á notendum milli Sauðárkróks og Varmahlíðar, auk þess sem skipt verður út hemlum sem bila. Síðan má búast við verkinu verði haldið áfram út að austan og fram í Lýdó í beinu framhaldi.
Vinna við mælavæðinguna hefst nú á næstu dögum og eru húseigendur hvattir til að huga að húskerfum þar sem það þarf. Best er að leita til pípulagningamanna ef gera þarf breytingar.
Lesa meira
Hegranes - Hofsstaðapláss
10.11.2025
Í dag á að tengja nýja dælustöð í landi Hamars og því verður lokað fyrir hitaveitu frá Ketu að Keflavík og í Hofsstaðaplássi á meðan.
Lokað verður fyrir rennsli kl. 13:00 en ekki er reiknað með að lokunin vari lengi.
Lesa meira

