Flýtilyklar
Fréttir
Borað eftir heitu vatni í Fljótum
26.11.2014
Starfsmenn Skagafjarðarveitna eru búnir að vera í dag í Fljótum. Þar stendur til að bora vinnsluholu til að fá meira heitt vatn fyrir íbúa svæðisins. Nýja holan er staðsett stutt frá núverandi holu sem þjónar Langhúsum auk tveggja sumarhúsa við Hópsvatn. Borun hefst í vikunni og er gert ráð fyrir að holan verði 100-200 metrar á dýpt. Á myndunum má sjá borvagn og önnur tæki sem notuð eru til að bora eftir heitu vatni.
Lesa meira
Hólavegur - Hólmagrund
19.11.2014
Vegna viðgerða verða truflanir á rennsli kalda vatnsins frá Hólavegi 22 og suður úr og einnig á Hólmagrund.
Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á þessu.
Barmahlíð - Háahlíð
12.11.2014
Vegna viðgerða í dælustöð verður heitavatnslaust í Háuhlíð og Barmahlíð frá kl. 10. og fram yfir hádegi í dag 12. nóv.
Skagafjarðarveitur vonast til að þetta valdi ekki miklum óþægindum.


