Flýtilyklar
Fréttir
Heitavatnslaust er í Háuhlíð og Barmahlíð
01.11.2014
Vegna bilunar í dælustöð er heitavatnslaust í Háuhlíð og Barmahlíð. Unnið er að viðgerð.
Stór bilun í Túnahverfi
20.10.2014
Vegna bilunar í stofnlögn ofan Dalatúns þarf að loka fyrir heita vatnið í Hlíða- og Túnahverfi á Sauðárkróki. Lokað verður fyrir vatnið fljótlega og mun lokunin vara fram eftir degi. Lokunin á við allar götur í Hlíða- og Túnahverfi nema Brekkutún, Eyrartún og Gilstún.
Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á þessu.
Virkjun borholu SK-32 í Hrolleifsdal
10.10.2014
Síðsumars hefur verið unnið hörðum höndum að því að virkja borholu SK-32 í Hrolleifsdal. Holan er staðsett um 35 metra norðan við núverandi borholu en sú hola þjónar Hofsósi og sveitinni frá Miðhóli í Hólahólum að Gröf á Höfðaströnd.
Lesa meira


