Fréttir

Freyjugata - Knarrarstígur - heitavatnslaust á morgun miðvikudag.

Nú er ljóst að seinkun verður á lokun í hitaveitu á Freyjugötu og Knarrarstíg þar sem vinna í brunni er umfangsmeiri en talið var. Búast má við að lokað verði fyrir á miðvikudagsmorgni 17. sept. upp úr kl. 8 og lokun standi fram eftir degi. Heitavatnslaust verður á Freyjugötu, Knarrarstíg og nyrsta hluta Sæmundargötu eins og sjá má á myndinni
Lesa meira

Freyjugata - Knarrarstígur - Sæmundargata

Á morgun 16. sept. verður unnið í brunni á mótum Freyjugötu og Knarrarstígs með tilheyrarndi lokunum í hitaveitu. Heitavatnslaust verður á allri Freyjugötunni, Knarrarstíg og ysta hluta Sæmundargötu eins og má sjá á meðfylgjandi mynd.
Lesa meira

Grófargil - Birkihlíð, Hegranes - Hofstaðapláss

Við minnum á vinnu við hitaveitu þriðjudaginn 9. September. Heitavatnslaust verður á svæðinu frá Grófargili að Birkihlíð og Keflavík í Hegranesi og að Hofsstaðaseli frá kl. 8:00 þriðjudaginn 9.september fram eftir degi meðan unnið er við endubætur á dælustöðinni við Grófargil.
Lesa meira

Hlíðahverfi syðri hluti - hitaveita - vatnsveita

Hlíðahverfi syðri hluti - hitaveita - vatnsveita Kl. 10 verður lokað fyrir kalda vatnið í Kvistahlíð, Grenihlíð, Lerkihlíð, Hvannahlíð og Furuhlíð vegna bilunar. Einnig mun heita vatnið detta út í Kvistahlíð, Lerkihlíð og Hvannahlíð um tíma. Unnið er að viðgerð í brunni við Kvistahlíð og má búast við að vatnsleysið standi fram eftir degi.
Lesa meira

Kvistahlíð, Lerkihlíð og Hvannahlíð.

Á morgun 19. ágúst og hinn daginn 20. ágúst verður unnið við dreifikerfi hitaveitu við Kvistahlíð, Lerkihlíð og Hvannahlíð. Vatnslaust verður einhvern hluta dags báða dagana í þessum götum.
Lesa meira

Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is