Flýtilyklar
Fréttir
Hofsós hitaveita miðvikudagur 21. jan
21.01.2026
Vegna viðgerða verða truflanir/lokanir í hitaveitu á Hofsósi eftir hádegið í dag, miðvikudag 21. jan. Svæðið sem um ræðir er Kárastígur, Bakkinn og Plássið að hluta eða öllu leiti.
Lesa meira
Mælavæðing hitaveitu í dreifbýli Skagafjarðar heldur áfram
06.01.2026
Skagafjarðarveitur luku vorið 2025 við umfangsmiklar framkvæmdir við að skipta út hemlum og mælavæða hitaveituna á Sauðárkróki. Urðu þá allir þéttbýliskjarnar í Skagafirði mælavæddir.
Hafist var handa við mælavæðingu í dreifbýli sl. haust og byrjað á notendum milli Sauðárkróks og Varmahlíðar. Samhliða var hemlum sem bilaðir voru skipt út. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir haldi síðan áfram austur á bóginn og fram í Lýdó.
Lesa meira
Kaldavatnslaust vegna bilunar
22.12.2025
Vegna bilunar í heimæð verður kaldavatnslaust á Grundarstíg, Hólmagrund og Smáragrund. Viðgerð stendur yfir og vatni verður hleypt á um leið og hægt er.

