18.09.2019
Nú uppúr hádeginu verður lokað fyrir kalda vatnið í hluta ytri bæjarins.
Kominn er upp mikill leki í kaldavatnslögn við Freyjugötu og þarf að loka fyrir vatnið meðan viðgerð fer fram. Um er að ræða ytri hluta Freyjugötu og Skagfirðingabrautar, um það bil á milli Skólastígs og Sævarstígs. Viðgerð verður hraðað eftir því sem kostur er og beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.