Neðri bærinn heitavatnslaus á sunnudaginn

Í vikunni bilaði stofnæðin inn í bæinn. Glöggir vegfarendur hafa e.t.v. tekið eftir jarðraski við Skagfirðingabúð.  Gert var við til bráðabirgða á miðvikudaginn, en næst komandi sunnudag, 19. apríl kl. 8:00, meðan vonandi flestir eru í fastasvefni, munum við loka fyrir heitavatnið  og klára viðgerðina.  Aðeins er um að ræða neðri bæinn. Hlíða- og Túnahverfi munu ekki lenda í lokuninni.

Þetta getur tekið  6-8 tíma ef ekkert óvænt kemur uppá.

Vonum að bæjarbúar sýni biðlund meðan á viðgerð stendur.

GA


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is