Heitu vatni hleypt á stofnlögn í Fljótum

 

Fallegt veður var í Fljótum þegar hleypt var á stofnlögn.

Mánudaginn 26. október sl. var heitu vatni hleypt á stofnlögn í Fljótum, frá dælustöð í landi Langhúsa og að dælustöð við Molastaði, samtals um 8km leið.

Í dag, fimmtudaginn 29. október var hleypt vatni á stofnlögn frá Molastöðum og að Hvammi, samtals um 3,3km leið.  Á næstu dögum er stefnt að áhleypingu að enda stofnlagnar við Depla og verður þá búið að hleypa vatni á alla stofnlögnina, samtals rúmlega 18km.

Verktaki vinnur þessa dagana að lagningu heimæða og verða væntanlega einhverjir notendur farnir að njóta heita vatnsins fyrir áramót.

 Gunnar Björn Rögnvaldsson ræsir dæluna í dæluhúsi við Langhús

Gunnar Björn Rögnvaldsson ræsir dæluna í dæluhúsi við Langhús

 

 


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is