Hitaveita í Fljótum

Í nóvember og desember sl. vann verktakafyrirtækið Ræktunarsamband Flóa og Skeiða að borun á nýrri heitavatnsholu við Langhús. Borunin tókst vel, borað var niður á 200m dýpi og gefur holan um 6 lítra/sek af um 100°C heitu vatni. Virkjun holunnar gerir Skagafjarðarveitum kleift að hefja lagningu hitaveitu í Fljótum.
Mánudaginn 12. Janúar sl. var haldinn opinn íbúafundur í félagsheimilinu Ketilási. Á fundinum kynntu Skagafjarðarveitur áform um hitaveituvæðingu í Fljótunum. Á milli 60 og 70 manns mættu á fundinn og ekki annað að sjá og heyra en að íbúar og sumarhúsaeigendur í Fljótum tækju væntanlegri lagningu hitaveitu fagnandi.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá borun holunnar og íbúafundi.


Borun við Langhús

Borun við Langhús

Borun við Langhús

Íbúafundur á Ketilási

Íbúafundur á Ketilási


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is