08.09.2021
Í dag miðvikudaginn 8. september er heitavatnslaust á Sauðárkróki, norðvesturhluta Hegraness og á Sauðárkróksbraut að Gili frá kl 16:00 og fram eftir kvöldi vegna viðhalds í aðaldælustöð. Lokunin mun standa fram eftir kvöldi, en reynt verður að hraða framkvæmdum eins og kostur er.
Um eðlilegt viðhald er að ræða þar sem verið er að endurnýja gasskilju í dælustöð 1 sem komin var á tíma. Gasskiljan sér um að afgasa vatnið áður en því er hleypt inn á kerfið.
Íbúum er bent á að skilja ekki eftir opna krana, slökkva á gólfhitadælum og huga vel að húskerfum þegar vatni verður hleypt á að nýju.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.