Mælavæðing þéttbýlisstaða í Skagafirði

Árið 2014 hófu Skagafjarðarveitur mælavæðingu í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Verkið hófst á útskiptingu eldri mæla á Hofsósi og Hólum en á þeim stöðum hefur heitt vatn verið selt skv. mæli frá upphafi. Síðustu vikur hefur verið unnið að uppsetningu mæla í Varmahlíð og er það verk langt komið.

Á næstu vikum hefst uppsetning mæla á Sauðárkróki, þar sem byrjað verður á Hlíðar- og Túnahverfi. Áætlað er að setja upp um 400 mæla á Sauðárkróki ár hvert og að verkinu verði lokið fyrir árslok 2017.

Mælarnir eru framleiddir af danska fyrirtækinu Kamstrup og eru svokallaðir rafeindamælar sem mæla rennsli með hljóðbylgjumælingu. Mælirinn sendir frá sér boð sem gerir það að verkum  að hægt er að safna álestrum í sérútbúna tölvu án þess að fara inn á heimili fólks.

Gert er ráð fyrir að lesið verði af mælunum einu sinni á ári og notkun áætluð fyrir ár í senn þannig að greiðslur verði jafnar yfir árið. Innheimta samkvæmt mæli hefst um leið og mælir er settur upp en áætluð notkun mun í fyrstu miðast við notkun skv. hemli í dag.

Nánari upplýsingar um mælavæðingu má nálgast á heimasíðu Skagafjarðarveitna, skv.is. Fyrirspurnir og ábendingar má senda í tölvupósti á skv@skv.is eða í síma 455-6200.


Svæði

Skagafjarðarveitur   |  Borgarteig 15  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6200  |  skv@skv.is