18.03.2014
Hinir vösku starfsmenn Skagafjarðarveitna hafa uppgötvað bilun í kalda vatninu við Öldustíg. Þess vegna verður lokað fyrir kalda vatnið þar fram eftir degi meðan viðgerð fer fram. Um er að ræða svæðið frá Hólavegi að Skagfirðingabraut, einnig mun nyrsta Víðigrundarblokkin verða vatnslaus. Búast má við að viðgerð ljúki síðdegis í dag. Beðist er afsökunar á óþægindum.
GA