31.03.2020
Mættur er til starfa nýr sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs Steinn Leó Sveinsson.
Steinn Leó er menntaður byggingatæknifræðingur frá Horsens í Danmörku með aðaláherslu á hönnun og gerð jarðvegsmannvirkja, gatnagerð, fráveitu- og vatnslagnir, verklegar framkvæmdir og landmælingar.
Steinn Leó hefur starfað hjá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða ehf. í fjölda ára, nú síðast sem framkvæmdastjóri þess.
Steinn Leó er uppalinn í Geitagerði í Skagafirði og er því Skagfirðingur að uppruna.
Við bjóðum Stein Leó velkominn til starfa og og óskum honum góðs gengis í nýju starfi.